Sjaminteee, whúhei, whúhei... sjammen tee!
Um að gera, Laugardagur maður, hellingur í gangi. Hú hei ..
Djöfulsins töffaraskapur er í fitubollufélaginu fimmtugar þessa dagana, þær sáust á Hressó síðast liðið fimmtudagskvöld. Þær voru að dansa við hávaxinn mann sem var klæddur í hvíta skyrtu sem lá lauslega við maga hans sem dansaði í takt við tónlistina. Bringuhárinn, dökk og krullótt kíktu upp um hálsmál dansarans. Hann stökk um á einum fæti á meðan hinn skoppaði upp og niður og söng "Hei, HEi, Hei".. Fitubollufélagið fimmtugar réðu sér ekki fyrir kæti þær skríktu og ein þeirra greip í faldinn á pilsinu sínu, hallaði sér fram og bakkaði svo rosalega hratt aftur á bak. Gestir staðarins sáu að það var mikið fjör í uppsiglingu því fitubollufélagið klöppuðu og skræktu,.. Gestir staðarins föttuðu þá að sú seiga var að stíga hin sívinsælu spor félagsins, ekki svo ólík og Derrik gamli tók hér á árum áður. Að sjálfsögðu áður en hann fékk frakkann sinn drappaða, sem er ógleymanlegur.
Brátt byrjaði staðurinn allur að klappa í takt og halla sér til hliðar, bollurnar tóku öll völd og sölsuðu í kringum manninn í hvítu skyrtunni. One one one..
Ekki leið á löngu þar til flestir gestir staðarins voru staðnir upp og byrjaðir að taka hin ólíklegustu spor, ung kona sást meira að segja taka róbótann, en það átti víst ekki að tala um það. Var þetta hið mesta dance-off sem sést hefur í Reykjavík og nágrenni.. Viðeigandi lag er að sjálfsögðu The Boss með The Braxtons..
Hvað annað gæti hugsanlega kveikt í liðinu, ekki voru það sígarettur eða vindlar góðir lesendur.
Dansinn veitti hamingjuna þetta kvöld enda hefur dansinn verið notaður sem eitt mesta hamingjutæki síðan...b.c.